|
Skrifað af: Ásbjörn Ólafsson
|
|
Ragna Káradóttir mastersnemi í Landslagsarktitektur óskar eftir þátttakendum í rýniferð um Laugarveginn frá Snorrabraut að Skólavörðustíg. Mæting við Intrum (vegamót Laugavegs og Snorrabrautar) klukkin 15:30
Endilega mætið og látið í ykkur heyra. Endum á pylsum á Hljómalindarreitnum |
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 25. júní 2010 09:07 |
|
Skrifað af: Sigrún Helga Lund
|
|

Hér að ofan má sjá fræga ljósmyndaröð frá þýsku borginni Münster sem sýnir hversu mikið pláss sextíu manns taka í borgarlandinu ef þeir ferðast á einkabílum, í strætó og á reiðhjólum. Münster er um 200 þúsund manna borg í Vesturhluta Þýskalands, og er hún gjarnan kölluð hjólahöfuðborg Þýskalands.
Ljósmyndaserían er gjarnan notuð í umræðum um samgöngu- og skipulagsmál í borgum, því hún sýnir glöggt hversu mikið svæði bílarnir taka á götunum, þar með einnig hve mikið gæti áunnist ef stærri hluti fólks ferðaðist um með öðrum hætti. Slíkt myndi ekki aðeins stuðla að minni hljóð- og loftmengun, og gera göturnar öruggari, heldur einnig gera það að verkum að þeir sem sannarlega vilja og þurfa nota bíl, kæmust greiðar á milli staða.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 23. júní 2010 15:00 |