Dofri Hermannsson

Staða: Varaborgarfulltrúi
Póstnúmer: 112
Fjölskylduhagir: Giftur, 2 dætur og 3ja á leiðinni
Átt þú bíl: Nei, en konan mín á bíl
Uppáhalds staður/borg: Hver einasta borg á lítið hverfi, jafnvel bara götu, þar sem íbúðir, verslanir og þjónusta blandast saman á einhvern einstakan hátt. Íbúar og gestir mætast þar á opinberum stöðum, veitingastöðum verslunum eða gangstéttum og úr verður borgarumhverfi eins og það gerist best. Það eru mínir uppáhaldsstaðir.
Hvernig ferð þú ferða þinna: Hjólandi, strætó og stundum með bíl
Hvað finnst þér um samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu: Við verðum að passa upp á að í borginni verði ekki einkabíllinn "aðal" en fólk "auka". Þörfin fyrir að komast á milli staða má ekki gera okkur að föngum á umferðareyjum með þrefalt gler í gluggum, sótsíur og hljóðmanir allt í kringum okkur. Fólk vill búa í hverfum þar sem það þarf ekki að hafa áhyggjur af öryggi barnanna í umferðinni innan hverfisins. Fólk vill hreint loft og lítinn hávaða frá umferð. Við þurfum að gera fólki auðvelt að komast á milli staða með aðferðum sem ekki brjóta í bága við þessi mikilvægu lífsgæði. Það verður best gert með öflugri almenningssamgöngum, betri aðstöðu fyrir hjólandi og gangandi og skipulagi sem tryggir að fólk hafi alla helstu þjónustu innan hverfis. |
|
|