|
Hjólreiðaferðir meðfram strandlínu Höfuðborgarsvæðisins njóta sífellt meiri vinsælda og eru nú í hópi 3 vinsælustu aðdráttarafla Reykjavikur samkvæmt tripadvisor. Að baki ferðaþjónustu af þessu tagi stendur ferðaþjónustufyrirtækið icelandbike.com
Þetta fyrirkomulag ferða fær lofsamlega dóma frá erlendum ferðamönnum sem hafa farið í ferðirnar. Endilega lesið umsögn konunnar sem fór í hjólaferðalag um Reykjavik 24 desember!!!! Það er greinilega liðin tíð að hér sé allt dautt í ferðaþjónustunni á jólum og öðrum hátíðisdögum. Eins afsanna forsvarsmenn hjólaferðanna að hjólreiðar séu eitthvað árstíðafyrirbrigði.
sjá
http://www.tripadvisor.com/ShowUserReviews-g189970-d1582006-r52453968-Reykjavik_Bike_Tour-Reykjavik.html
Ég veit það fyrir víst að á Þorláksmessu hjólaði hópur frá Hong Kong sem þótti mun meira spennandi að upplifa borgina á þennan hátt en úr bíl. Og eitt er það víst að maður sér aðra kima borgarinnar, önnur sjónarhorn og önnur gæði en út um bílrúðuna.
Lifið heil!
Anna Karlsdóttir |