|
ccBoard Forum |
|
|
|
|
|
Subject :Hjólaferðamennska í borginni - sívinsælli ferðamáti ferðamanna..
2010-01-07 10:10:10
|
|
|
| anna1717 |
|
| Fresh Boarder |
 |
Joined: 2008-09-30 15:01:54
Posts: 8
Location: |
|
|
|
|
|
Forum :
Hjólaspjall
Topic :
Hjólaferðamennska í borginni - sívinsælli ferðamáti ferðamanna
Hjólreiðaferðir meðfram strandlínu Höfuðborgarsvæðisins njóta sífellt meiri vinsælda og eru nú í hópi 3 vinsælustu aðdráttarafla Reykjavikur samkvæmt tripadvisor. Að baki ferðaþjónustu af þessu tagi stendur ferðaþjónustufyrirtækið icelandbike.com
Þetta fyrirkomulag ferða fær lofsamlega dóma frá erlendum ferðamönnum sem hafa farið í ferðirnar. Endilega lesið umsögn konunnar sem fór í hjólaferðalag um Reykjavik 24 desember!!!! Það er greinilega liðin tíð að hér sé allt dautt í ferðaþjónustunni á jólum og öðrum hátíðisdögum. Eins afsanna forsvarsmenn hjólaferðanna að hjólreiðar séu eitthvað árstíðafyrirbrigði.
sjá
http://www.tripadvisor.com/ShowUserReviews-g189970-d1582006-r52453968-Reykjavik_Bike_Tour-Reykjavik.html
Ég veit það fyrir víst að á Þorláksmessu hjólaði hópur frá Hong Kong sem þótti mun meira spennandi að upplifa borgina á þennan hátt en úr bíl. Og eitt er það víst að maður sér aðra kima borgarinnar, önnur sjónarhorn og önnur gæði en út um bílrúðuna.
Lifið heil!
Anna Karlsdóttir |
IP Logged
|
|
|
|
|
|
Subject :Grænar samgönguáætlanir fyrir hverfin í borginni..
2009-12-14 01:10:09
|
|
|
|
|
|
|
Subject :Re:hjólafærni.is..
2009-12-13 09:31:29
|
|
|
| bsm |
|
| Fresh Boarder |
 |
Joined: 2008-08-18 11:45:00
Posts: 1
Location: |
|
|
|
|
|
Forum :
Hjólaspjall
Topic :
hjólafærni.is
Til hamingju með síðuna, þetta er frábært framtak hjá ykkur.
Set hlekk hér á slóðina fyrir letingjana,
http://hjolafaerni.is |
IP Logged
|
|
|
|
|
|
Subject :hjólafærni.is..
2009-12-09 18:39:28
|
|
|
|
|
|
|
Subject :Meðgjöf hin opinbera með bíleigendum...
2009-11-20 15:21:34
|
|
|
| shl |
|
| Fresh Boarder |
 |
Joined: 2008-08-18 10:52:19
Posts: 3
Location: |
|
|
|
|
|
Forum :
Almennt spjall
Topic :
Meðgjöf hin opinbera með bíleigendum.
Ég vil benda á bæði áhugaverða færslu, sem og athugasemdir við færsluna. Ef ég ætti að draga fram helstu punktana væru þeir þrír:
"Útgjöld samgöngumálaráðuneytis til vegamála: 32,4 milljarðar
Tekjur ríkisins af bifreiðum, bensíni og olíu: 19,4 milljarðar"
"Heildarkostnaður við bílastæðin er svimandi hár jafnvel þótt ekki sé tekið tillit til landverðs, 300.000 kr/stæði * 600.000 stæði = 180 milljarðar kr"
"Varlega áætlað er þá kostnaður borgarinnar umfram tekjur af bílum a.m.k. 4 milljarðar árið 2009. "
Hvað er í gangi?!
|
IP Logged
|
|
|
|
|
|
Subject :Hjólað berbakt..
2009-08-18 18:28:37
|
|
|
|
|
|
|
Subject :Leiðakerfið fyrir veturinn...
2009-08-18 10:52:42
|
|
|
|
|
|
|
Subject :Bíllaust úthverfi í Þýskalandi..
2009-09-01 17:38:39
|
|
|
|
|
|
|
Subject :Re:Strætóspjall..
2009-02-04 09:48:15
|
|
|
| Morten |
Guest |
|
|
|
Forum :
Almennt spjall
Topic :
Strætóspjall
Rétt er það AriT, eða reyndar þá hefur verkfræðifyrirtækið Mannvit sem er staðsett með höfuðstöðvar eins og þú lýsir, velt vöngum yfir þessa skekkju í samkeppnishæfni sagöngumáta og gert eitthvað í því.
Um samgöngustefnu Mannvits má lesa hér :
[url]http://mannvit.is/Mannvit/StefnurMannvits/Samgongustefna/[/url]
Þeir rukka ekki fyrir bílastæðin heldur bjóða þeim sem velja að nota þær ekki upp á greiðslu sem samvari mánaðarkorti í Strætó. Þeir reikna með að bílastæði kosti um 20.000 á mánuði, svo þetta hefur sparað fyrirtækinu peninga, vegna þess að þeir horfðu fram á að þurfa að fjölga bílastæðum.
Fjölbraut í Ármúla er aftur á móti farinn að rukka fyrir bílastæðin, það er að segja nemendur þurfa að borga 8000 á önn. Við sjáum enn að ekki er gengið alla leið með að láta bílastæðanotendur borga fullt verð, en þetta er skref í rétta átt. Fyrir starfsmenn skólans er svipað í boði og hjá Mannviti. Reyndar er einn munur og það er að sett var upp hlið, stjórnað með plastkortum. Hjá Mannviti er einungis byggt á trausti á því að menn svindli ekki.
Bæði Mannvit og FÁ fengu viðurkenningu fyrir einlitt samgöngustefnu sína á stofnfundi Samtaka um bíllausan lífsstil í Samgönguviku í September í fyrra.
Sjá
[url]http://billaus.is/index.php?option=com_content&view=article&id=58:eitt-hundrae-manns-a-stofnfundinum&catid=34:frettir&Itemid=53[/url]
[url]http://billaus.is/index.php?option=com_ignitegallery&task=view&gallery=4&Itemid=67[/url]
Mér heyrist að Samtökin séu í þann mund að búa til bréf með hvatningu til stærra fyrirtækja í borginni að fara að dæmi Mannvits og FÁ. |
IP Logged
|
|
|
|
|
|
Subject :Re:Strætóspjall..
2009-02-03 20:39:16
|
|
|
| AriT |
|
| Fresh Boarder |
 |
Joined: 2009-01-22 11:39:33
Posts: 1
Location: |
|
|
|
|
|
Forum :
Almennt spjall
Topic :
Strætóspjall
Mig langar til að leggja smá orð í belg í tengslum við pistil \"karlk\". Ég keyrði Reykjavíkurstrætó til margra ára, sem var að vissu leyti niðurdrepandi vegna stöðugs samdráttar með örfáum undantekningum. En það er alveg ljóst að margur hefur ekki almennilega reiknað út kostnað varðandi samgöngur. Þar sem menn komast með einum vagni að heiman og í vinnu og tiltölulega stutt er í biðstöð er varla spurning um hagkvæmnina, ég tala ekki um ef vegalengdin er það stutt að einkabíllinn er rétt farin að hitna, eða varla það, þegar mætt er til starfa. Það er mjög dýrt að keyra kaldan bíl og hann mótor slitnar margfalt þegar hann er kaldur. Ennfremur er mikilvægt að vinnuveitendur hugi að þessu og hætti jafnvel að borga undir bílastæðin. Það er ekkert sjálfsagt mál að fólk þurfi ekki að borga í bílastæði við vinnustaðinn. Frítt bílastæði skekkir kostnaðarvitund fólks. Ég held að einn vinnustaður hafi hugleitt þetta, verktak/verkfræðifyrirtæki á horni Grensás-Suðurlandsbrautar, ef ég man rétt. En það er rétt að kynningarstarf hjá Strætó mætti vera miklu öflugra. |
IP Logged
|
|
|
|
|
|
Subject :Re:MIKILVÆGAR BREYTINGAR Á FERÐATÍÐNI STRÆTÓ..
2009-02-03 16:03:04
|
|
|
| Morten |
Guest |
|
|
|
Forum :
Almennt spjall
Topic :
Strætóspjall
Eitt sem virðist vanta er að sannfæra ráðamenn um að almenningssamgöngur sé arðbærar. Og væntanlega eru ymis konar vegabreikkun sem er nú talin arðbær, ekki arðbær þegar litið er til heildarinnar.
Hér er smá dropi í þann forða af rökstuðningi sem þarf að byggja upp :
[url]http://www.expressindia.com/latest-news/metro-saved-rs-2-000-crore-in-five-years-study/417216/[/url]
Expressindia » Story
Metro saved Rs 2,000 crore in five years: study
( Sweta Dutta )
Posted: Jan 31, 2009 at 0037 hrs IST
New Delhi: While it is believed that Metro, right from conceptualisation to construction stage, is an expensive urban project — Phase I of the Delhi Metro was constructed at a cost of Rs 10,571 crore — a report has found that the Delhi Metro has saved Rs 2,072.51 crore for Delhi in five years since it began operations in December 2002.
Delhi Metro’s Phase I saves passenger time, cut fuel costs, reduces capital and operating costs of vehicles, reduces environmental damage, prevents accidents and reduces maintenance cost on infrastructure, says the study conducted by the Central Road Research Institute.
The Metro also saves nearly 66 minutes in the average day of a commuter, which amounts to Rs 725 crore saved from 2002 to 2007, in terms of their earning capacity in that time span.
The study was conducted in May 2007 by a team from CRRI headed by Dr Mukhopadhyay and Neeraj Sharma.
In terms of road traffic conditions, the study notes: “since the Metro began operations, there has been a progressive reduction in daily vehicle demand,” as commuters prefer using the Metro.
“Till 2007, the Metro has taken the share of 40,000 vehicles of all other modes of travel, such as cars, buses, two-wheelers, autorickshaws, among others.”
The study also found the air quality inside Metro trains better than in other modes of transport, including cars. The reduction in the number of vehicles has further prevented 28,800 tonne of carbon dioxide being released in the air every year. “If the 9,876 trees cut for construction of Phase I were left intact, they could have absorbed only about 220 tonne of carbon dioxide every year,” the study says.
Counting benefits
Lives saved due to reduced
vehicles on road: 476
Fuel consumption saved (petrol diesel and CNG): 57,858 tonne
Reduction of CO2 levels in air: 28,800 tonne
Source: CRRIS study |
IP Logged
|
|
|
|
|
|
Subject :Re:MIKILVÆGAR BREYTINGAR Á FERÐATÍÐNI STRÆTÓ..
2009-01-28 22:47:24
|
|
|
| anna1717 |
|
| Fresh Boarder |
 |
Joined: 2008-09-30 15:01:54
Posts: 8
Location: |
|
|
|
|
|
Forum :
Almennt spjall
Topic :
Strætóspjall
Já það er pínulítið sorglegt til þess að vita að sveitastjórnir og þá aðallega Reykjavíkurborgaryfirvöld hafa ekki skoðað fleiri fleti á þessu, t.d aðeins hærri gjaldskrá fyrir betri þjónustu en einhlýta skerðingu í tíðni ferða. Það lýsir ekki vilja til að leggja áherslu á þessi mál. Á sama tíma og það gerist er Gordon Feller yfirmaður urban age institute (stofnun sem var sett á laggirnar af alþjóðabankanum á sínum tíma) að halda fyrirlestur um áhrif Obama á breytingar í orku og samgöngukerfum. Eitt af viðfangsefnunum er hvernig stjórnmálafólk lagi sig að nýrri hugsun og taki á málum.
What contribution could be made by advocates of a \"whole systems approach\" to
policy making, especially where city leaders are hard-pressed to cope with the
harsh realities of dysfunctional urban economies and their underlying systems?
Það eru andstæður í því! |
IP Logged
|
|
|
|
|
|
Subject :Re:MIKILVÆGAR BREYTINGAR Á FERÐATÍÐNI STRÆTÓ..
2009-01-26 20:42:39
|
|
|
| pawel |
|
| Fresh Boarder |
 |
Joined: 2008-08-21 09:56:45
Posts: 7
Location: |
|
|
|
|
|
Forum :
Almennt spjall
Topic :
Strætóspjall
Alveg sammála,
Mér finnst það til dæmis eftir þessu að ekki hafi verið einu sinni ráðist í minnstu verðhækkanir en í staðinnþjónustan skorin niður mikið. Sjálfur hefði ég ekki lagt mig á móti gjaldskrárhækkunum ef það hefði táknað óbreytta eða betri þjónustu. |
IP Logged
|
|
|
|
|
|
Subject :MIKILVÆGAR BREYTINGAR Á FERÐATÍÐNI STRÆTÓ..
2009-01-26 12:52:28
|
|
|
| anna1717 |
|
| Fresh Boarder |
 |
Joined: 2008-09-30 15:01:54
Posts: 8
Location: |
|
|
|
|
|
Forum :
Almennt spjall
Topic :
Strætóspjall
Strætó er í hrammi stjórnmálafólks sem ekki virðist hafa neina skýra framtíðarsýn um hlutverk strætó í borgarsamfélaginu eða ekki tækin til að hrinda umbótum í framkvæmd. Það eina sem fókuserað er á er bókhald og lendingar um það sveitarfélaga í milli. Ekki virðist vera gerð mikil tilraun til að lyfta sér upp yfir það sjónarhorn og reyna að skoða málin frá víðtækari sjónarhóli. Svo það er kannski ekki að undra að ákvarðanataka um verulega fækkun ferða utan annatíma (um miðjan dag - á kvöldin og um helgar) fari nánast fram hjá fólki. Fólk áttar sig ekki fyrr en það er orðið of seint.
Það þarf að taka í forsvarsmenn strætó og krefja þá svara um framtíðarsýn fyrirtækisins/stofnunarinnar. Það þarf að taka í ríkisvaldið og krefja forsvarsmenn samgönguráðuneytis svara um hvernig þeir ætli að fylgja skýrslu um almenningssamgöngur eftir í verki.
Það þarf að stuðla að hugarfarsbreytingu meðal stjórnenda fyrirtækja og stofnana um samgöngumál. Flestir notendur strætó hafa ekki fordóma um almenningssamgöngur - það eru hinsvegar frekar þeir sem að taka ákvarðanir um örlög almenningssamgangna og hafa vart setið í vagni. |
IP Logged
|
|
|
|
|
|
Subject :Nýsköpun í umferðakerfum..
2008-10-22 22:44:01
|
|
|
| anna1717 |
|
| Fresh Boarder |
 |
Joined: 2008-09-30 15:01:54
Posts: 8
Location: |
|
|
|
|
|
Forum :
Almennt spjall
Topic :
Nýsköpun í umferðakerfum
Sæl
Ég fann áhugaverða síðu frá Smart inspire mobility um nýmæli í umferðarkerfum. Það er kannski eitthvað sem hvetur til nýsköpunar á þessu sviði hér. Aldrei að vita!
[url]http://inspiremobility.blogspot.com/[/url] |
IP Logged
|
|
|
|
|
|
Subject :Re:Gjaldfrjálst í strætó ?..
2008-10-16 13:12:26
|
|
|
| anna1717 |
|
| Fresh Boarder |
 |
Joined: 2008-09-30 15:01:54
Posts: 8
Location: |
|
|
|
|
|
Forum :
Strætóspjall
Topic :
Gjaldfrjálst í strætó ?
ég er heldur ekki sammála að það sé þjóðþrifamál að hafa gjaldfrjálst í strætó. Miklu fremur er eins og Árni segir mikilvægt að gera leiðakerfið skilvirkara þannig að það tengi höfuðborgarsvæðið og svæðin í strætósamlaginu betur innanvert. Að aðgengi að miðum og kortum í strætó sé betra. Það er mér til dæmis alveg óskiljanlegt að strætó sé ekki löngu búin að koma upp greiðslukerfi gegnum netbanka eins og símafyrirtækin gera. Ef þú ættir kort sem að þú gætir fyllt á eins og frelsi eða hvað það heitir í gsm símana (afsakið ég er svo gamaldags að ég er áskrifandi). Þannig gæti maður nýtt sér strætó að þörfum.
Í fleiri daga reyndi ég að kaupa 11 miða ræmu í strætó en fékk ekki vegna þess að strætisvagnstjórarnir voru með uppselt. Einn vagnstjóri benti mér á að hann hefði selt yfir fimm hundruð miða-ræmur á einum degi, og að hann hefði einfaldlega ekki veski til að bera meira. Ég steig uppp í vagn hjá honum rétt fyrir átta um morgun, þannig að hann hlýtur að hafa selt miðana daginn áður.
Við áttum saman mikið spjall og réttilega hefur sölustöðum strætómiða og korta fjölgað í seinni tíð frekar en fækkað. Ég lærði til dæmis að sundlaugarnar selja í strætó.
Ég er á því að leiðabók strætó ætti hins vegar að vera gjaldfrjáls.
Allir með strætó!
Anna Karlsdóttir |
IP Logged
|
|
|
|
|
|
Subject :Re:Gjaldfrjálst í strætó ?..
2008-10-16 11:48:18
|
|
|
| arnid |
Guest |
|
|
|
Forum :
Strætóspjall
Topic :
Gjaldfrjálst í strætó ?
Persónulega hef ég ekki trú á því að hafa gjaldfrjálst í strætó. Gjaldtaka á höfuðborgarsvæðinu er hófleg, sérstaklega hjá þeim sem ferðast að staðaldri. Það kostar ekki nema um 40.000 kall að hafa árskort í strætó sem allir í fjölskyldunni geta notað. Gjaldtaka fyrir sambærilega þjónustu í nágrannalöndunum er mun hærri. Frekar ætti að leggja áherslu á samgöngustefnu fyrirtækja, stofnana og skóla og endurgreiða þeim sem nota strætó í gegnum slíkt kerfi eða láta þá sem nota einkabílinn greiða fyrir það sem þeir fá núna ókeypis þótt það sé ekki frítt s.s. eins og bílastæði.
Við verðum held ég að horfast í augu við það að þjónusta Strætó er mjög góð og ódýr fyrir notendur miðað við allar aðstæður og þetta segi ég sem notandi kerfisins. Mér sýnist að oft séu þeir sem hallmæla strætó þeir sem [u]ekki[/u] nota strætó.
Það er ekki þar með sagt að ekki sé hægt að gera betur. Tengja þarf úthverfi höfuðborgarsvæðisins, Reykjanesbæ, Selfoss, Hveragerði og Borgarnes, við kerfið. Ný norður-suður akstursleið um Reykjanesbraut þarf að koma til. Fjölga þarf forgangsakreinum. Þar sem lítið pláss er á götum þurfa bílastæði og akreinar fyrir einkabílinn að víkja. Bæta þarf þjónustu á biðstöðvum og þá á kostnað sveitarfélaganna í samvinnu við einkaaðila sem vilja reka þjónustu.
Árni Davíðsson |
IP Logged
|
|
|
|
|
|
Subject :Re:Gjaldfrjálst í strætó ?..
2008-10-14 11:22:29
|
|
|
| Pawel |
Guest |
|
|
|
Forum :
Strætóspjall
Topic :
Gjaldfrjálst í strætó ?
Persónulega er ég á móti þessu... helsta hintið er það að í þeim löndum þar sem almenningssamgöngur eru góðar eru þær ekki ókeypis, jafnvel frekar dýrar.
Til dæmis í köben kostar ein ferð töluvert meira að meðaltali en í Reykjavík (hvað þá núna... 10 miða kort er farið að kosta 5000 kall íslenskar :) ) |
IP Logged
|
|
|
|
|
|
Subject :Gjaldfrjálst í strætó ?..
2008-10-06 21:01:27
|
|
|
| Gestur 1 |
Guest |
|
|
|
Forum :
Strætóspjall
Topic :
Gjaldfrjálst í strætó ?
[url]visir.is/article/20081006/FRETTIR01/729663136[/url]
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/06/olafur_f_leggur_til_nidurfellingu_fargjalda_i_strae/
Kostir sem Ólafur F nefnir
[ul]
[li]Færri bílar - minni mengun[/li]
[li]Færri bílar - minni kostnaður við gerð og viðhald umferðarmannvirkja [/li]
[li]Færri bílar - minni kostnaður fjölskyldna í Reykjavík vegna rekstrar [/li]
[/ul]
Mögulegar aðrar kostir - lsonum við sirt greiðslukerfi
[ul]
[li]Mun auðveldari fyrir ferðamenn[/li]
[li]Mun auðveldari fyrir fólk sem hefur verið á lífinu og ekki ættu að aka heim[/li]
[/ul]
Mögulega ókostir
[ul]
[li]Minni virðing fyrir það sem ekki kostar [/li]
[li]Krakkar geta týnst eða \"flúið\" án þess að skipuleggja neitt v. fargjald (?)[/li]
[li]Aðalvandinn er ekki verðið [/li]
[/ul]
Vandi sem ekki leysist
[ul]
[li]tiðni[/li]
[li]áreiðanleiki[/li]
[li]stirðleiki leiðakerfis[/li]
[li]tíminn sem það tekur að fara leiðir sem kerfið ekki setti í fórgang, og krefst þess að maður skipti vagn[/li]
[li]Möguleikar á að taka með reiðhjól fækki ?[/li]
[li]Álit íslendinga á almenningssamgöngur (?) [/li]
[/ul]
Ólafur F talar líka um stokkalausnir.
Að kalla stokkalausnir gæluverkefni er sérlega ósmekklegt og als ekki málefnalegt. Sérstaklega þegar maðurinn er læknir.
En önnur möguleiki væri að sjálfsögðu að lækka hraða talsvert, til dæmis framhjá tónlistarhúsinu og gera akreinar bíla að akreinum hjólreiðamanna, strætó og etv. leigubíla. |
IP Logged
|
|
|
|
|
|
Subject :Göngum í skólann..
2008-10-06 16:37:35
|
|
|
|
|
|