|
Skrifað af: Benedikt Steinar Magnússon
|
|
Þriðjudagur, 20. apríl 2010 09:30 |
Fyrirlestraröð um skipulagsmál í Norræna húsinu
Arkitektafélag Íslands í samstarfi við Félag íslenskra landslagsarkitekta, Umhverfisráðuneytið og Norræna húsið, heldur fyrirlestraröðina "Lýðheilsa og skipulag".
Á HönnunarMarsi 2009 var haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur þriggja daga málþing sem bar sama heiti. Vegna fjölda áskorana var ákveðið að endurtaka leikinn.
Að þessu sinni verður fyrirlestraröðin haldin í Norræna húsinu miðvikudagana 14., 21. og 28.apríl kl. 17-19.
Flytjendur næstkomandi miðvikudag 21.apríl kl.17 eru : Gísli Marteinn Baldursson formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur, Hermann Georg Gunnlaugsson landslagsarkitekt, Lilja Sigrún Jónsdóttir læknir & Hlynur Torfason landfræðingur og Ásbjörn Ólafsson verkefnastjóri hjá Vegagerðinni.
Sjá heimasíðu Arkitektafélags Íslands : www.ai.is
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 23. júní 2010 14:49 |