Fréttir
Hjólreiðastígur á Hverfisgötu Skoða sem PDF skjal  | Prentvæn útgáfa |
Skrifað af: Benedikt Steinar Magnússon   
Miðvikudagur, 18. ágúst 2010 11:26

Starfsmenn Reykjavíkurborgar vinna nú að uppsetningu tímabundins hjólreiðastígs á Hverfisgötu. Þessi hjólreiðastígur er hluti hjólreiðastígs sem á að ná frá Laugardalnum niður í bæ eins og sjá má á þessu korti.

Framkvæmdin er sérstaklega velkomin núna þar sem afar erfitt er að komast af göngustígnum við Sæbraut inn í Lækjargötu vegna framkvæmdanna við tónlistarhúsið.

Tilkynningu Umhverfis- og samgöngusvið má sjá hér.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 18. ágúst 2010 11:36
 
Rölt á laugavegi á morgun fimmtudaginn 24.6.2010 kl. 15:30 við Intrum Skoða sem PDF skjal  | Prentvæn útgáfa |
Skrifað af: Ásbjörn Ólafsson   
Miðvikudagur, 23. júní 2010 22:53

Ragna Káradóttir mastersnemi í Landslagsarktitektur óskar eftir þátttakendum í rýniferð um Laugarveginn frá Snorrabraut að Skólavörðustíg. Mæting við Intrum (vegamót Laugavegs og Snorrabrautar) klukkin 15:30

Endilega mætið og látið í ykkur heyra. Endum á pylsum á Hljómalindarreitnum

Síðast uppfært: Föstudagur, 25. júní 2010 09:07
 
Ráðstefna um mjúka vegfarendur Skoða sem PDF skjal  | Prentvæn útgáfa |
Skrifað af: Ásbjörn Ólafsson   
Mánudagur, 21. júní 2010 15:27

27-28. maí var haldin ráðstefna um mjúka vegfarendur (Svage trafikanter) í Kaupmannahöfn.

Hér er finna erindi sem voru á þeirri ráðstefnu, m.a. eitt frá Íslandi.

http://www.nvfnorden.org/Pages/1068

 
Myndum borg! Skoða sem PDF skjal  | Prentvæn útgáfa |
Skrifað af: Sigrún Helga Lund   
Þriðjudagur, 15. júní 2010 00:46

Myndin fræga frá Munster

 

Hér að ofan má sjá fræga ljósmyndaröð frá þýsku borginni Münster sem sýnir hversu mikið pláss sextíu manns taka í borgarlandinu ef þeir ferðast á einkabílum, í strætó og á reiðhjólum. Münster er um 200 þúsund manna borg í Vesturhluta Þýskalands, og er hún gjarnan kölluð hjólahöfuðborg Þýskalands.

Ljósmyndaserían er gjarnan notuð í umræðum um samgöngu- og skipulagsmál í borgum, því hún sýnir glöggt hversu mikið svæði bílarnir taka á götunum, þar með einnig hve mikið gæti áunnist ef stærri hluti fólks ferðaðist um með öðrum hætti. Slíkt myndi ekki aðeins stuðla að minni hljóð- og loftmengun, og gera göturnar öruggari, heldur einnig gera það að verkum að þeir sem sannarlega vilja og þurfa nota bíl, kæmust greiðar á milli staða.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 23. júní 2010 15:00
Meira hér
 
Sjálfbær þróun á höfuðborgarsvæðinu Skoða sem PDF skjal  | Prentvæn útgáfa |
Skrifað af: Ásbjörn Ólafsson   
Þriðjudagur, 01. júní 2010 08:43

Hér er mjög áhugaverð skýrsla um skipulag á höfuðborgarsvæðinu og sjálfbæra þróun, einkum m.t.t. almenningssamgangna.

Sjálfbær þróun í samgöngum.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 23. júní 2010 14:29
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 5
Mostly Cloudy Light Rain Light Rain Showers Showers
13°C 14°C 14°C 12°C 12°C
Mið Fim Fös Lau Sun
<<  July 2010  >>
 M  T  W  T  F  S  S 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
262728293031 

Fólk á ferðinni

Finnbogi Óskarsson

Staða:
Kennari / tónlistarmaður

Póstnúmer:
220

Fjölskylduhagir:
Einhleypur

Átt þú bíl:
Nei

Uppáhalds staður/borg:
München

Hvernig ferð þú ferða þinna:
Hjólandi, gangandi, með strætó

Hvað finnst þér um samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu:
Þrátt fyrir að hjólastígum á höfuðborgarsvæðinu hafi fjölgað á síðustu árum má enn gera miklu betur, sérstaklega hvað varðar tengingar milli sveitarfélaganna. Til dæmis er óskiljanlegt að ekki skuli hafa verið lagður hjólastígur meðfram Reykjanesbrautinni þegar hún var tvöfölduð milli Hafnarfjarðar og Breiðholts (sama má raunar segja um tvöföldunina til Keflavíkur). Aðför sveitarfélaganna að strætókerfinu verður einnig að linna; kerfið er nánast orðið ónothæft á kvöldin og um helgar sökum lágrar (og sífellt lækkandi) ferðatíðni.

Samtök um bíllausan lífsstíl, Powered by Joomla!; Joomla templates by SG web hosting