| Fyrsta hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar | Skoða sem PDF skjal | | Prentvæn útgáfa | |
| Skrifað af: Stjórnin |
| Miðvikudagur, 20. janúar 2010 12:27 |
|
Reykjavíkurborg hefur samþykkt að efla hjólreiðar með metnaðarfullri hjólreiðaáætlun. Markmiðið er fimmföldun á hjólaleiðum í Reykjavík á næstu fimm árum, tíföldun á næstu tíu árum, hraðbraut fyrir hjól milli Laugardals og miðborgar og brú yfir Elliðaárósa – eingöngu fyrir gangandi og hjólandi. Við hvetjum fólk til að kíkja á áætlunina á slóðinni http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/desktopdefault.aspx/tabid-259/1198_read-18853/ og sérstaklega á áhugaverð drög að bæklingi (.pdf) um hjólaborgina.
|



