|
Skrifað af: Benedikt Steinar Magnússon
|
|
Mánudagur, 26. apríl 2010 13:56 |
|
Vil benda félagsmönnum og öðrum á eftirfarandi fyrirlestur um hjólreiðar sem verður í Háskóla Íslands, þriðjudaginn 27. apríl.
Borgarskipulag og hjólreiðar í Reykjavík – samanburður við Strasbourg
Tom Spach, meistaranemi við Université de Strasbourg, heldur fyrirlestur í stofu 132 í Öskju, Háskóla Íslands, þriðjudaginn 27. apríl kl. 15. Tom hefur dvalið við Háskóla Íslands sem skiptinemi undanfarna mánuði og greinir hér frá verkefni um skipulag og hjólreiðar í Reykjavík, sem hann hefur unnið að innan námsbrautar í landfræði.
Fyrirlesturinn verður á ensku og er öllum opinn.
Ágrip: Margar borgir hafa reynt að minnka orkunotkun og rýmisþörf með því að endurhugsa skipulag sitt, einkum hvað varðar samgöngur. Í þessu verkefni er samgönguskipulag í Reykjavík tekið til skoðunar, allt frá skipulagi sem gert var á 7. áratug síðustu aldar, sem átt hefur þátt í gríðarlegri notkun einkabíla, til nýrra áherslna á að auka hlut hjólreiða í samgöngum í borginni. Þróunin í Reykjavík er borin saman við það sem gerst hefur í Strasbourg, en í þeirri borg var mótuð ný samgöngustefna árið 1989 þar sem áhersla var lögð á að auka þátt sporvagna, gönguferða og hjólreiða í samgöngumynstrinu. Strasbourg er nú sú borg Frakklands þar sem hjólreiðar eru auðveldastar. Um 518 km af hjólastígum hafa verið lagðir og hlutur hjólreiða í öllum ferðum er 8%. Í verkefninu er dreginn fram sá munur sem er á þróun þessara tveggja borgarrýma og hugleitt hvaða lærdóm mætti draga af stefnunni sem mótuð var í Strasbourg til að stuðla að auknum hjólreiðum í Reykjavík.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 23. júní 2010 14:25 |