|
Skrifað af: Benedikt Steinar Magnússon
|
|
Miðvikudagur, 03. febrúar 2010 11:41 |
Freyr Ingólfsson

Staða: Efnaverkfræðingur
Fjölskylduhagir: Í sambúð
Átt þú bíl: Já
Uppáhalds staður/borg: Húsavík / Stokkhólmur
Hvernig ferð þú ferða þinna: Hjóla í vinnuna og nota bílinn þegar ég þarf að versla og fara lengri vegalengdir
Hvað finnst þér um samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu: Samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu er sniðið að þörfum einkabílsins, miklar vegalengdir og stór bílamannvirki sem taka mikið plás og eru staðsett á röngum stöðum. Flestar samgönguframkvæmdir, nýjar og gamlar, eru oft hugsuð til alltof skamms tíma. Helstu samgönguæðar eru byggðar á gömlum leiðum sem henta endilega ekki í dag og skera öll sveitarfélögin í helminga. Sundabraut er hins vegar gott dæmi um samgöngubót til að nefna eitthvað jákvætt, þar sem hægt er að losnað við tugi hringtorga og sleppa við að keyra í gegnum Mosfellsbæ. En að mínu mati er besta samgöngubótin þétting byggðar, flatarmál stór-Reykjavíkur svæðisins er allt of mikið miðað við fólksfjölda. |
|
|
Skrifað af: Benedikt Steinar Magnússon
|
|
Miðvikudagur, 03. febrúar 2010 11:38 |
Björn Guðmundsson

Staða: Vinn hjá Mannvit, er menntaður véliðnfræðingur
Fjölskylduhagir: Giftur og þrjú börn
Átt þú bíl: Já, á einn bíl
Uppáhalds staður/borg: Berlín
Hvernig ferð þú ferða þinna: Hjóli og á bíl
Hvað finnst þér um samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu: Ég reyni að hjóla reglulega til vinnu frá Hafnarfirði til Reykjavíkur, nú yfir vetrarmánuðina þegar snjór er, er nokkuð erfitt að hjóla þar sem ekki er gert ráð fyrir hjólum við aðal umferðaræðar á þessari leið og ekki rutt nema rétt fyrir bíla en ekki út á vegöxlinni þar sem er snjór eða krapi. Þær gönguleiðir sem ég hjóla eftir eru ruddar seint og/ eða illa. Þar sem göngustígar fara á milli bæjarfélaga er jafnvel ekki rutt að bæjarmörkum. |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 03. febrúar 2010 11:41 |
|
Skrifað af: Ásbjörn Ólafsson
|
|
Föstudagur, 10. júlí 2009 16:29 |
|
Það efast enginn um að ganga er ein allra besta heilsubót sem völ er á.
Á heimasíðunni http://www.ganga.is/er að finna ítarlegur upplýsingar um allar helstu gönguleiðir sem er að finna á Íslandi í dag.
Ef það dugir ekki þá er alltaf hægt að hvetja sveitarfélögin/landeigendur til að búa til fleiri gönguleiðir. Hér er tengill á leiðbeiningarrit frá Ferðamálastöðu um hvernig standa eigi merkingum á gönguleiðin -> http://www.ferdamalastofa.is/upload/files/Merkingar_gonguleida(1).pdf
Góða skemmtun. Gangi á guðs/óðins/búdda/eða eitthvað viðeigandi vegum |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 08. desember 2009 23:21 |
|
|
Skrifað af: Benedikt Steinar Magnússon
|
|
Þriðjudagur, 19. maí 2009 12:08 |
Þorsteinn Eggertsson  Staða: Rithöfundur og söngvaskáldPóstnúmer: Fjölskylduhagir: Í sambúð með konu Átt þú bíl: Nei. Hef aldrei átt svoleiðis nokkuð Uppáhalds staður/borg: Margir, td. Flórens og Kaupmannahöfn Hvernig ferð þú ferða þinna: Í strætó eða gangandi, enda er einkabíllinn ekki bara dýrari en strætó - ég þarf aldrei að leita að bílastæðum fyrir strætisvagnana. Hvað finnst þér um samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu: Allt of mikið af bílum og allt of mikið af vegaslaufum (mislægum gatnamótum). Í staðinn fyrir allar slaufurnar væri (eða hefði verið) hægt að byggja upp nokkuð gott lestakerfi. Það er misskilningur að lestakerfi í borgum þurfi öll að vera grafin neðanjarðar. Sjáið td. Kaupmannahöfn og Dublin (ég hef búið í báðum borgunum). Þar er meira en helmingur lestakerfanna ofanjarðar. Lestakerfi væri hagkvæmt í Reykjavík og nágrenni þar sem fólk eyðir ómældum tíma á köldum vetrardögum í að skafa frost af bílrúðum – og þarf að skipta um dekk amk. tvisvar á ári. |
|
Skrifað af: Benedikt Steinar Magnússon
|
|
Þriðjudagur, 19. maí 2009 12:02 |
Bragi Sveinsson  Staða: Verkfræðingur og bankastarfsmaðurPóstnúmer: 101 Fjölskylduhagir: Ógiftur og barnlaus Átt þú bíl: Nei Uppáhalds staður/borg: Uppsala, Svíþjóð Hvernig ferð þú ferða þinna: Gangandi Hvað finnst þér um samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu: Bæta mætti strætisvagnasamgöngur, t.d. með tíðari ferðum og lægra fargjaldi. Einnig finnst mér skorta á almenna virðingu ökumanna gagnvart gangandi vegfarendum. |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 19. maí 2009 12:12 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 3 |