|
Skrifað af: Benedikt Steinar Magnússon
|
|
Miðvikudagur, 03. febrúar 2010 11:38 |
Björn Guðmundsson

Staða: Vinn hjá Mannvit, er menntaður véliðnfræðingur
Fjölskylduhagir: Giftur og þrjú börn
Átt þú bíl: Já, á einn bíl
Uppáhalds staður/borg: Berlín
Hvernig ferð þú ferða þinna: Hjóli og á bíl
Hvað finnst þér um samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu: Ég reyni að hjóla reglulega til vinnu frá Hafnarfirði til Reykjavíkur, nú yfir vetrarmánuðina þegar snjór er, er nokkuð erfitt að hjóla þar sem ekki er gert ráð fyrir hjólum við aðal umferðaræðar á þessari leið og ekki rutt nema rétt fyrir bíla en ekki út á vegöxlinni þar sem er snjór eða krapi. Þær gönguleiðir sem ég hjóla eftir eru ruddar seint og/ eða illa. Þar sem göngustígar fara á milli bæjarfélaga er jafnvel ekki rutt að bæjarmörkum.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 03. febrúar 2010 11:41 |