|
Skrifað af: Benedikt Steinar Magnússon
|
|
Miðvikudagur, 03. febrúar 2010 11:41 |
Freyr Ingólfsson

Staða: Efnaverkfræðingur
Fjölskylduhagir: Í sambúð
Átt þú bíl: Já
Uppáhalds staður/borg: Húsavík / Stokkhólmur
Hvernig ferð þú ferða þinna: Hjóla í vinnuna og nota bílinn þegar ég þarf að versla og fara lengri vegalengdir
Hvað finnst þér um samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu: Samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu er sniðið að þörfum einkabílsins, miklar vegalengdir og stór bílamannvirki sem taka mikið plás og eru staðsett á röngum stöðum. Flestar samgönguframkvæmdir, nýjar og gamlar, eru oft hugsuð til alltof skamms tíma. Helstu samgönguæðar eru byggðar á gömlum leiðum sem henta endilega ekki í dag og skera öll sveitarfélögin í helminga. Sundabraut er hins vegar gott dæmi um samgöngubót til að nefna eitthvað jákvætt, þar sem hægt er að losnað við tugi hringtorga og sleppa við að keyra í gegnum Mosfellsbæ. En að mínu mati er besta samgöngubótin þétting byggðar, flatarmál stór-Reykjavíkur svæðisins er allt of mikið miðað við fólksfjölda.
|