|
Skrifað af: Benedikt Steinar Magnússon
|
|
Þriðjudagur, 19. maí 2009 12:08 |
Þorsteinn Eggertsson  Staða: Rithöfundur og söngvaskáldPóstnúmer: Fjölskylduhagir: Í sambúð með konu Átt þú bíl: Nei. Hef aldrei átt svoleiðis nokkuð Uppáhalds staður/borg: Margir, td. Flórens og Kaupmannahöfn Hvernig ferð þú ferða þinna: Í strætó eða gangandi, enda er einkabíllinn ekki bara dýrari en strætó - ég þarf aldrei að leita að bílastæðum fyrir strætisvagnana. Hvað finnst þér um samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu: Allt of mikið af bílum og allt of mikið af vegaslaufum (mislægum gatnamótum). Í staðinn fyrir allar slaufurnar væri (eða hefði verið) hægt að byggja upp nokkuð gott lestakerfi. Það er misskilningur að lestakerfi í borgum þurfi öll að vera grafin neðanjarðar. Sjáið td. Kaupmannahöfn og Dublin (ég hef búið í báðum borgunum). Þar er meira en helmingur lestakerfanna ofanjarðar. Lestakerfi væri hagkvæmt í Reykjavík og nágrenni þar sem fólk eyðir ómældum tíma á köldum vetrardögum í að skafa frost af bílrúðum – og þarf að skipta um dekk amk. tvisvar á ári.
|