Mostly Cloudy Showers Rain Scattered T-Storms Showers / Wind
13°C 13°C 11°C 10°C 11°C
Fös Lau Sun Mán Þri

Fólk á ferðinni

Valgeir Gestsson

Valgeir Gestsson

Staða:
Bóksali/Nemi/Tónlistamaður

Póstnúmer:
101

Fjölskylduhagir:
Einhleypur og barnlaus

Átt þú bíl:
Nei, enda hef ég aldrei tekið bílpróf

Uppáhalds staður/borg:
Reykjavík og Roskilde

Hvernig ferð þú ferða þinna:
Þessi misserin er Strætó að láta í minnipokann fyrir reiðhjólinu mínu og göngutúrum

Hvað finnst þér um samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu:
Mér finnst að þau gætu verið í betra standi, en vandamálið felst í heildarskipulagi borgarinnar. Mér líkar illa við að í hvert sinn sem á að byggja eitthvað þá sé búið til nýtt hverfi sem er eins og kúla í laginu og engin tvö úthverfi geta nokkurntímann tengst. Þetta leiðir til þess að allir þurfa að reka bíl(a) því fótgangandi fólk á ekki séns í þessar vegalengdir, það verður svo til þess að risastórar stofnæðar þarf til að láta bílana flæða hratt og vel. Í kringum þær götur fer svo mikið landssvæði til spillis því enginn vill byggja eða búa nálægt þeim. Ástæðan fyrir því að ég hef ekki minnst á Strætó í þessu svari er sú að það fyrirtæki er farið að veita svo lélega þjónustu að almenningsvagnar eru hægt og rólega að verða óraunhæfur fararmáti.

Samtök um bíllausan lífsstíl, Powered by Joomla!; Joomla templates by SG web hosting