Lög félagsins Skoða sem PDF skjal  | Prentvæn útgáfa |
Skrifað af: Benedikt Steinar Magnússon   
Miðvikudagur, 10. september 2008 10:15

Lög Samtaka um bíllausan lífsstíl

 

I. kafli Nafn og tilgangur

1.1 Félagið heitir Samtök um bíllausan lífsstíl. Aðsetur þess er í Reykjavík og varnarþing er í Reykjavík.

1.2 Samtök um bíllausan lífsstíl er þverpólitískt félag fólks sem hefur það sameiginlega áhugamál að gera bíllausan lífsstíl að vænlegri kosti en nú er. Markmið félagsins er ekki að berjast gegn einkabílum eða bíleigendum, heldur einungis að stuðla að fjölbreyttari samgöngum og berjast fyrir því að jafnræðis sé gætt milli ólíkra samgöngukosta.

1.3 Tilgangi sínum samkvæmt gr. 1.2 skal félagið ná með því að standa fyrir; fundum, atburðum, þjóðmálaumræðu, og hverju því öðru sem fallið er til að vekja jákvæða athygli á bíllausum lífsstíl.

1.4 Starfstími félagssins og reikningsár er á milli aðalfunda.

 

II. kafli Stjórn félagsins

2.1 Stjórn félagsins skal skipuð fimm félagsmönnum. Kosningar til stjórnar skal auglýsa á tryggilegan hátt einni viku, hið minnsta, fyrir boðaðan aðalfund. Stjórn skal skipuð formanni, ritara, gjaldkera og tveimur meðstjórnendum. Hver stjórnarmeðlimur skal kosinn sérstakri kosningu á aðalfundi. Á fyrsta fundi stjórnar eftir aðalfund skal hún skipta með sér verkum að fenginni tillögu formanns.

2.2 Stjórn stýrir málefnum félagsins með þeim takmörkunum sem lög þessi setja. Hún tekur ákvarðanir um starfsemi félagsins og er ábyrg fyrir fjárreiðum og skuldbindingum gagnvart öðrum aðilum. Skipunartími stjórnar er á milli aðalfunda.

2.3 Formaður ritar firma félagsins. Formaður og gjaldkeri rita prókúru félagsins.

2.4 Formaður kemur fram fyrir hönd félagsins, boðar stjórnarfundi og stýrir fundum stjórnar.

2.5 Ritari ritar fundargerðir stjórnarfunda, heldur félagaskrá og hefur umsjón með heimasíðu félagsins.

2.6 Gjaldkeri ber ábyrgð á bókhaldi félagsins og hefur umsjón með fjármögnun félagsins.

2.7 Stjórn skal halda fundi eigi sjaldnar en einu sinni í mánuði. Stjórnarmeðlimir geta óskað þess að boðað verði til stjórnarfundar. Meirihluti atkvæða ræður á stjórnarfundi. Stjórn telst ályktunarbær, ef meirihluti stjórnarmeðlima situr fund.

 

III. kafli Aðalfundur

3.1 Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda í september ár hvert. Til fundarins skal stjórn boða með auglýsingu á tryggilegan hátt, með viku fyrirvara hið minnsta, og er hann þá lögmætur. Tillaga hlýtur samþykki ef helmingur fundarmanna greiðir henni atkvæði.

3.2 Mál þessi skulu tekin til meðferðar á aðalfundi:

1. Ársskýrsla um störf stjórnar

2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram

3. Kosningar:

3.1 Formaður

3.2 Ritari

3.3 Gjaldkeri

3.4 Tveir meðstjórnendur

  3.5 Tveir varamenn

3.6 Tveir skoðunarmenn reikninga

4. Lagabreytingar

5. Önnur mál

3.3 Kosningarétt og kjörgengi á aðalfundi hafa allir félagsmenn. Tilkynna skal stjórn framboð til embætta innan félagssins að minnsta kosti sólahring fyrir upphaf aðalfundar. Heimilt er að framlengja framboðsfrest í þau embætti sem framboð berst ekki í.

3.4 Félagið innheimtir ekki félagsgjöld.

 

IV. kafli Félagsmenn

4.1 Félagsmaður getur orðið hver sá sem er fylgjandi tilgangi félagsins eins og hann er tilgreindur í gr. 1.2. Stjórn skal samþykkja reglulega uppfærða félagaskrá, sem ritari heldur, og teljast þeir félagsmenn sem skráðir eru á samþykktu félagatali.

 

V. kafli Ýmis ákvæði

5.1 Lögum félagsins má breyta á aðalfundi og þurfa 2/3 hlutar fundarmanna að greiða atkvæði með lagabreytingunni til að hún teljist samþykkt. Lagabreyting öðlast gildi frá þeim tíma þegar hún er samþykkt á aðalfundi.

5.2 Lög þessi skulu ætíð birt á heimasíðu félagsins þar sem öllum félagsmönnum er heimilaður aðgangur.

5.3 Ákvæði til bráðabirgða Á framhaldsstofnfundi skal samþykkja lög félagsins og að því loknu skal kosið til embætta félagsins samkvæmt 3.2 grein þessara laga. Á framhaldsstofnfundi hafa þeir kosningarétt og kjörgengi sem skrá sig við upphaf fundar sem stofnfélaga.

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 18. september 2008 21:45
 
Mostly Cloudy Showers Rain Scattered T-Storms Showers / Wind
13°C 13°C 11°C 10°C 11°C
Fös Lau Sun Mán Þri

Fólk á ferðinni

Þorsteinn Eggertsson

Þorsteinn Eggertsson

Staða:
Rithöfundur og söngvaskáld

Póstnúmer:

Fjölskylduhagir:
Í sambúð með konu

Átt þú bíl:
Nei. Hef aldrei átt svoleiðis nokkuð

Uppáhalds staður/borg:
Margir, td. Flórens og Kaupmannahöfn

Hvernig ferð þú ferða þinna:
Í strætó eða gangandi, enda er einkabíllinn ekki bara dýrari en strætó - ég þarf aldrei að leita að bílastæðum fyrir strætisvagnana.

Hvað finnst þér um samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu:
Allt of mikið af bílum og allt of mikið af vegaslaufum (mislægum gatnamótum). Í staðinn fyrir allar slaufurnar væri (eða hefði verið) hægt að byggja upp nokkuð gott lestakerfi. Það er misskilningur að lestakerfi í borgum þurfi öll að vera grafin neðanjarðar. Sjáið td. Kaupmannahöfn og Dublin (ég hef búið í báðum borgunum). Þar er meira en helmingur lestakerfanna ofanjarðar. Lestakerfi væri hagkvæmt í Reykjavík og nágrenni þar sem fólk eyðir ómældum tíma á köldum vetrardögum í að skafa frost af bílrúðum – og þarf að skipta um dekk amk. tvisvar á ári.

Samtök um bíllausan lífsstíl, Powered by Joomla!; Joomla templates by SG web hosting