Hjólreiðastígur á Hverfisgötu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Benedikt Steinar Magnússon   

Starfsmenn Reykjavíkurborgar vinna nú að uppsetningu tímabundins hjólreiðastígs á Hverfisgötu. Þessi hjólreiðastígur er hluti hjólreiðastígs sem á að ná frá Laugardalnum niður í bæ eins og sjá má á þessu korti.

Framkvæmdin er sérstaklega velkomin núna þar sem afar erfitt er að komast af göngustígnum við Sæbraut inn í Lækjargötu vegna framkvæmdanna við tónlistarhúsið.

Tilkynningu Umhverfis- og samgöngusvið má sjá hér.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 18. ágúst 2010 11:36
 
Rölt á laugavegi á morgun fimmtudaginn 24.6.2010 kl. 15:30 við Intrum Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásbjörn Ólafsson   

Ragna Káradóttir mastersnemi í Landslagsarktitektur óskar eftir þátttakendum í rýniferð um Laugarveginn frá Snorrabraut að Skólavörðustíg. Mæting við Intrum (vegamót Laugavegs og Snorrabrautar) klukkin 15:30

Endilega mætið og látið í ykkur heyra. Endum á pylsum á Hljómalindarreitnum

Síðast uppfært: Föstudagur, 25. júní 2010 09:07
 
Myndum borg! Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigrún Helga Lund   

Myndin fræga frá Munster

 

Hér að ofan má sjá fræga ljósmyndaröð frá þýsku borginni Münster sem sýnir hversu mikið pláss sextíu manns taka í borgarlandinu ef þeir ferðast á einkabílum, í strætó og á reiðhjólum. Münster er um 200 þúsund manna borg í Vesturhluta Þýskalands, og er hún gjarnan kölluð hjólahöfuðborg Þýskalands.

Ljósmyndaserían er gjarnan notuð í umræðum um samgöngu- og skipulagsmál í borgum, því hún sýnir glöggt hversu mikið svæði bílarnir taka á götunum, þar með einnig hve mikið gæti áunnist ef stærri hluti fólks ferðaðist um með öðrum hætti. Slíkt myndi ekki aðeins stuðla að minni hljóð- og loftmengun, og gera göturnar öruggari, heldur einnig gera það að verkum að þeir sem sannarlega vilja og þurfa nota bíl, kæmust greiðar á milli staða.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 23. júní 2010 15:00
 
Ráðstefna um mjúka vegfarendur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásbjörn Ólafsson   

27-28. maí var haldin ráðstefna um mjúka vegfarendur (Svage trafikanter) í Kaupmannahöfn.

Hér er finna erindi sem voru á þeirri ráðstefnu, m.a. eitt frá Íslandi.

http://www.nvfnorden.org/Pages/1068

 
Sjálfbær þróun á höfuðborgarsvæðinu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásbjörn Ólafsson   

Hér er mjög áhugaverð skýrsla um skipulag á höfuðborgarsvæðinu og sjálfbæra þróun, einkum m.t.t. almenningssamgangna.

Sjálfbær þróun í samgöngum.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 23. júní 2010 14:29
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 12
Mostly Cloudy Light Rain Light Rain Showers Showers
13°C 14°C 14°C 12°C 12°C
Mið Fim Fös Lau Sun
<<  July 2010  >>
 M  T  W  T  F  S  S 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
262728293031 

Fólk á ferðinni

Björn Guðmundsson

Björn Guðmundsson

Staða:
Vinn hjá Mannvit, er menntaður véliðnfræðingur

Fjölskylduhagir:
Giftur og þrjú börn

Átt þú bíl:
Já, á einn bíl

Uppáhalds staður/borg:
Berlín

Hvernig ferð þú ferða þinna:
Hjóli og á bíl

Hvað finnst þér um samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu:
Ég reyni að hjóla reglulega til vinnu frá Hafnarfirði til Reykjavíkur, nú yfir vetrarmánuðina þegar snjór er, er nokkuð erfitt að hjóla þar sem ekki er gert ráð fyrir hjólum við aðal umferðaræðar á þessari leið og ekki rutt nema rétt fyrir bíla en ekki út á vegöxlinni þar sem er snjór eða krapi. Þær gönguleiðir sem ég hjóla eftir eru ruddar seint og/ eða illa. Þar sem göngustígar fara á milli bæjarfélaga er jafnvel ekki rutt að bæjarmörkum.

Samtök um bíllausan lífsstíl, Powered by Joomla!; Joomla templates by SG web hosting