Bíllaus lífsstíll hvetur fyrirtæki til að gera samgöngusamninga við sitt starfsfólk. Skoða sem PDF skjal  | Prentvæn útgáfa |
Skrifað af: Stjórnin   
Miðvikudagur, 01. apríl 2009 12:10

Samtök um bíllausan lífsstíl hafa það meginmarkmið að stuðla að bættum ferðavenjum á höfuðborgarsvæðinu og telja það afar þýðingarmikið málefni í nútímasamfélagi.

 

Flestir Íslendingar fara til vinnu einir á einkabíl, með tilheyrandi umferðarþunga, slæmum loftgæðum og kostnaði, sem lendir á þeim sjálfum, vinnuveitendum þeirra og samfélaginu öllu. Þær ferðavenjur verða ekki skýrðar með landfræðilegri legu, veðráttu, þéttleika byggðar eða öðrum utanaðkomandi þáttum eins og dæmi frá nágrannalöndum okkar sanna, vandamálið liggur í hefðum og hugarfari. Fjölmargir aðrir faramátar eru í boði, svo sem að taka strætó, hjóla, ganga, skokka, fara á línuskautum eða í samfloti með öðrum, sem allir eru hagkvæmari, stuðla að bættri lýðheilsu og bæta umhverfi okkar.

 

Í byrjun apríl munum við senda bréf til allra stærstu fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu og skora á þau að taka upp samgöngustyrki fyrir þá starfsmenn sem kjósa að nota ekki einkabíla til ferða til og frá vinnu. Slíkur styrkur er ætlaður til þess að verðlauna þá starfsmenn sem ekki kæmu til vinnu á einkabíl og spara fyrirtækinu um leið talsverðan kostnað vegna bílastæða.

 

Fjölmargir Íslendingar fara á þessum tímum í gegnum gagngera endurskoðun á sínum útgjöldum og lífsstíl. Hóflegri notkun einkabíla gæti skilað flestum heimilum fleiri hundruð þúsunda á ári hverju. Nú óskum við eftir liðsinni fyrirtækja í landinu við að hvetja og styðja starfsfólk sitt í heilbrigðari lífsvenjum, fyrir jafnt sál, líkama og buddu. Um leið gerum við almenningssamgöngur að samkeppnishæfari valmöguleika og höfuðborgarsvæðið okkar að betri stað til að búa á.

 

Fyrsta bréfið verður afhent samgönguráðherra fyrir utan samgönguráðuneytið að Tryggvagötu fimmtudaginn 2. apríl kl. 12.00. Við hvetjum ykkur til að mæta á staðinn og sýna málefninu samstöðu. Afrit af bréfinu má finna hér.

 

Einnig viljum við vekja athygli á því að umferðarráð er í dag nær eingöngu skipað fulltrúum þeirra sem eru akandi í umferðinni. Slíkt teljum við tímaskekkju og óskum við eftir því að okkar fulltrúi skipi einnig ráðið.



Síðast uppfært: Fimmtudagur, 02. apríl 2009 09:10
 
Mostly Cloudy Showers Showers Showers Showers
15°C 14°C 15°C 15°C 14°C
Fös Lau Sun Mán Þri
<<  September 2010  >>
 M  T  W  T  F  S  S 
    1  2  3  4  5
  6  7  8  9101112
13141516171819
20212223242526
27282930   

Fólk á ferðinni

Björn Guðmundsson

Björn Guðmundsson

Staða:
Vinn hjá Mannvit, er menntaður véliðnfræðingur

Fjölskylduhagir:
Giftur og þrjú börn

Átt þú bíl:
Já, á einn bíl

Uppáhalds staður/borg:
Berlín

Hvernig ferð þú ferða þinna:
Hjóli og á bíl

Hvað finnst þér um samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu:
Ég reyni að hjóla reglulega til vinnu frá Hafnarfirði til Reykjavíkur, nú yfir vetrarmánuðina þegar snjór er, er nokkuð erfitt að hjóla þar sem ekki er gert ráð fyrir hjólum við aðal umferðaræðar á þessari leið og ekki rutt nema rétt fyrir bíla en ekki út á vegöxlinni þar sem er snjór eða krapi. Þær gönguleiðir sem ég hjóla eftir eru ruddar seint og/ eða illa. Þar sem göngustígar fara á milli bæjarfélaga er jafnvel ekki rutt að bæjarmörkum.

Samtök um bíllausan lífsstíl, Powered by Joomla!; Joomla templates by SG web hosting