Mánaðarleg kvikmyndakvöld á Kaffibarnum. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Borgarskipulagshópur samtaka um bíllausan lífsstíl.   

Borgarskipulagshópur Bíllauss lífsstíls kynnir mánaðarleg kvikmyndakvöld.

Sýndar verða kvikmyndir tengdar borgarskipulagi 3riðja 3riðjudag í mánuði og fylgt eftir með léttu spjalli.

Fyrsta kvöldið hefst þriðjudaginn 15. desember 2009 kl: 20:30 á Efri hæð Kaffibarsins Bergstaðastræti 1

Nánari dagskrá kynnt á staðnum.

Sýningarmaður: Orri Gunnarsson.

Við munum horfa á þrjá þætti úr mjög vandaðri seríu frá PBS í Bandaríkjunum sem kallast e2 (e-í-öðru-veldi). Það verður komið víða við, þættirnir kallast


Bogotá: Building a Sustainable City
Paris: Vélo Liberté
Portland: A Sense of Place

Sjá linka í brot úr þáttunum á Facebook síðu atburðarins.

 

Síðast uppfært: Mánudagur, 14. desember 2009 23:31
 
Skutl.is Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Stjórnin   

Samtökin vilja vekja athygli á nýrri heimasíðu, skutl.is.

Heimasíðan er hugsuð þannig að ,,nemendur í Háskóla Íslands geti sparað ferðakostnað með því að leita eftir skutli hjá þeim sem eru á bifreið, og að sama skapi að þeir sem eru með bifreið bjóði far''.

Samtökin fagna þessu góða framtaki og vona að námsmenn verði duglegir að nýta sér þessa hagkvæmu lausn.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 08. desember 2009 22:55
 
Bíllaus borg. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Stjórnin   

Samtökin vilja vekja athygli á prýðisgóðri færslu Hilmars Þórs Björnssonar sem ber titilinn bíllaus borg.

Þar bendir hann meðal annars réttilega á að það séu ekki bílastæðavandamál í borginni, heldur skipulags- og samgönguvandamál.

Síðast uppfært: Föstudagur, 20. nóvember 2009 14:44
 
Ganga og merkingar á gönguleiðum Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásbjörn Ólafsson   

Það efast enginn um að ganga er ein allra besta heilsubót sem völ er á.

Á heimasíðunni http://www.ganga.is/er að finna ítarlegur upplýsingar um allar helstu gönguleiðir sem er að finna á Íslandi í dag.

Ef það dugir ekki þá er alltaf hægt að hvetja sveitarfélögin/landeigendur til að búa til fleiri gönguleiðir.  Hér er tengill á leiðbeiningarrit frá Ferðamálastöðu um hvernig standa eigi merkingum á gönguleiðin -> http://www.ferdamalastofa.is/upload/files/Merkingar_gonguleida(1).pdf

Góða skemmtun. Gangi á guðs/óðins/búdda/eða eitthvað viðeigandi vegum

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 08. desember 2009 23:21
 
Bíllaus lífsstíll og Betri samgöngur, morgunfundur 19. nóvember Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Stjórnin   

 

Fimmtudagsmorguninn 19. nóvember klukkan 08:30-10:00 verður fundur um samgöngur í aðalskipulagi í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  • Nýtt aðalskipulag. Ávarp. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs

  • Borgarskipulag og samgöngur. Haraldur Sigurðsson, verkefnisstjóri

  • Betri samgöngur. Ólafur Bjarnason, samgöngustjóri

  • Umferðaröryggi. Stefán Finnsson, verkfræðingur

  • Hjólreiðaáætlun Reykjavíkur. Pálmi Freyr Randversson, verkfræðingur

  • “Eftir hverju er verið að bíða”. Sigrún Helga Lund, tölfræðingur, í stjórn Samtaka um bíllausan lífsstíl

  • Umræður

Fundarstjóri er  Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri

Við hvetjum alla áhugasama til að mæta.

Sjá nánar á www.adalskipulag.is

 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 3 af 12
Mostly Cloudy Light Rain Light Rain Showers Showers
13°C 14°C 14°C 12°C 12°C
Mið Fim Fös Lau Sun
<<  September 2010  >>
 M  T  W  T  F  S  S 
    1  2  3  4  5
  6  7  8  9101112
13141516171819
20212223242526
27282930   

Fólk á ferðinni

Dagný Skúladóttir

Dagný Skúladóttir

Staða:
Bókari hjá HHÍ og er í námi hjá HÍ

Fjölskylduhagir:
Í sambandi

Átt þú bíl:
Nei

Uppáhalds staður/borg:
Núna er það Reykjavík

Hvernig ferð þú ferða þinna:
Geng það mesta

Hvað finnst þér um samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu:
Mér finnst einkabíllinn fá allt of mikið pláss í þessu samfélagi. Fólk ætti að ganga, hjóla eða taka strætó oftar. Það er ekkert mál með smá skipulagningu.

Samtök um bíllausan lífsstíl, Powered by Joomla!; Joomla templates by SG web hosting