|
Skrifað af: Stjórnin
|
|
Útflutningsráð heldur fræðslufund um möguleika og uppbyggingu ferðaþjónustu tengdri hjólreiðum á Íslandi, föstudaginn 13. nóvember, kl. 8.30-10.30, á Radisson SAS Hótel Sögu. Breski ráðgjafinn Tom Burnham mun fara yfir möguleika í ferðaþjónustu og uppbyggingu hjólaleiða og segja frá aðkomu sinni að hjólaferðamennsku á Bretlandi. Tom hefur m.a. tekið þátt í vinnu við verkefnið Coast to Coast á Norður-Englandi, markaðssetningu hjólreiðaferða og komið að bóka-og vefútgáfu um þennan þátt ferðaþjónustunnar. Tom er sérfræðingur á sviði uppbyggingar ferðaþjónustu í dreifbýli og því einkar áhugavert að heyra hvað hann hefur fram að færa.
Á fundinum munu félagar úr Fjallahjólaklúbbi Íslands og Landssamtökum hjólreiðamanna kynna starfsemi sína.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með tölvupósti
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða í síma 511 4000.
Nánari upplýsingar veita Björn H. Reynisson,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og Hermann Ottósson,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
, sími 511 4000. |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 11. nóvember 2009 10:19 |
|
|
Skrifað af: Stjórnin
|
|
Eins og sjá má í viðtali við stjórnarmann samtakanna á ynja.net.
Það þarf væntanlega ekki að tíunda meðlimum samtakanna, en öðrum bendum við á að láta á reyna og sjá hversu yndislegur ferðamáti hjólreiðar eru. |
|
Skrifað af: Stjórnin
|
|
Samtök um bíllausan lífsstíl verða með opinn félagsfund á Thorvaldsen klukkan 20:30 í kvöld þar sem við skiptumst á reynslusögum af upplifun okkar á notkun hinna ýmsu ferðamáta.
Við hvetjum sem flesta til að mæta, hvort sem er til að deila með okkur sínum frásögnum eða njóta þess að hlusta á aðra!
|
|
|
Skrifað af: Stjórnin
|
|
Fyrsta upphitaða strætóskýli landsins var afhjúpað við hátíðlega athöfn klukkan 16:30 í dag.
Skýlið, sem er samstarfsverkefni Orkusölunnar og Stúdentaráðs HÍ verður upplýst, upphitað og búið stafrænu neti!
Við óskum stúdentum, sem og öðrum vegfarendum um strætóskýlið við Hringbraut innilega til hamingju með þessa stórkostlegu lífsgæðabót, sem mun eflaust verma marga rassana á komandi vetri! |
|
Skrifað af: Sigrún Helga Lund
|
|
Stjórn Samtaka um bíllausan lífsstíl vonar að engir hjólagarpar hafi farið flatt á hálkunni í morgun. Staðreyndin er hinsvegar sú að það er hægur leikur að hjóla í (nær) öllum veðrum, ef réttur útbúnaður er fyrir hendi (sem er álíka jafndýr og tankur af bensíni).
Fjallahjólaklúbburinn lumar á nokkrum sérfræðingum um slíkan vetrarbúnað og heldur vetrarundirbúningsnámskeið næstkomandi fimmtudag, 8. október, í klúbbhúsinu að Brekkustíg 2, klukkan 20:00.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Stjórnin hvetur áhugasama til að mæta, enda eru hjólreiðar fullgildur samgöngumáti allan ársins hring. |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 06. október 2009 08:38 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 4 af 12 |