Glæsileg byrjun á flottu átaki. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigrún Helga Lund   

Alls tóku átján leikskólar þátt í átakinu "Labbað í leikskólann", samstarfsverkefni Barnanna okkar og Samtaka um bíllausan lífsstíl sem haldið var dagana 14. til 18. september.  Leikskólarnir eru í stafrófsröð:

Austurborg, Álftaborg, Ársól, Barnaheimilið Ós, Hálsaborg, Heiðarborg, Hof, Jörfi, Klettaborg, Kvistaborg, Laufásborg, Mánagarður, Mýri, Njálsborg, Rauðaborg, Rauðhóll, Reynisholt og Rofaborg.

Foreldrar, starfsfólk og ekki síst börnin báru þessu skemmtilega átaki vel söguna og barst okkur eftirfarandi lýsing frá leikskólanum Rauðuborg: " Hér koma nokkrar myndir frá Rauðaborg. Þrátt fyrir rysjótt veður hafa flestir gengið eða hjólað í leikskólann þessa viku. Allir hafa sýnt  metnað og eru ánægðir með átakið og eitt foreldri uppgötvaði að það væri fljótara að ganga en keyra í leikskólann."

Stjórn samtakanna er að vonum hæstánægð með hversu vel til tókst og væntir að átakið verði árviss viðburður héðanfrá.

Á myndasíðunni má finna skemmtilegar myndir sem leikskólinn Rauðaborg sendi okkur af ánægðum foreldrum og börnum.

Heiðurinn að átakinu bera Ólöf Kristjánsdóttir, formaður Barnanna okkar og Sigrún Ólafsdóttir fyrrum stjórnarmeðlimur Samtaka um bíllausan lífsstíl.

 
Löbbum í leikskólann! Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ólöf Kristjánsdóttir   

Kæru foreldrar!

Við hvetjum alla til að taka þátt í átakinu Labbað í leikskólann, sem verður haldið dagana 14. – 18. september. Geymum bílinn heima og löbbum eða hjólum með börnunum okkar í leikskólann. Þannig drögum við úr mengun og umferð við leikskólana, eigum skemmtilega samverustund með börnunum okkar og fáum góða hreyfingu í kaupbæti!

 
Löbbum í leikskólann. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigrún Helga Lund   

 

Samtök um bíllausan lífsstíl og Börnin okkar hafa nú tekið höndum saman og ákveðið að standa fyrir átakinu Labbað í leikskólann sem hefst 14. september  og lýkur 18. september.

Undanfarin ár hefur borið talsvert á fréttum af mikilli svifryksmengun í borginni. Suma daga var mengunin svo mikil að ekki þótti ráðlegt að hleypa leikskólabörnum á ákveðnum svæðum út. Sporna þarf við þessari uggvænlegu þróun og viljum við því fá foreldra og leikskóla til þess að leggja okkur lið með því að sýna gott fordæmi og vekja athygli á þessu mikilvæga máli.

Á meðan á átakinu stendur hvetjum við foreldra til að ganga eða hjóla með börnum sínum í leikskólann í stað þess að koma akandi. Með þessu má draga úr mengun í kring um leikskólana auk þess sem þetta gefur börnunum samverustundir með foreldrum sínum á morgnanna. Átakið verður auglýst nánar þegar nær dregur.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 15. september 2009 08:29
 
Hjólað berbakt á Menningarnótt Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigrún Helga Lund   

Íslenski fjallahjólaklúbburinn stendur fyrir viðburðinum hjólað berbakt á Menningarnótt. Lagt verður af stað frá Miklatúni klukkan 15:00. Við hvetjum alla áhugasama til að mæta og skemmta sér og öðrum :)

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 18. ágúst 2009 18:20
 
Leiðaráætlun vetrarins komin á vefinn. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Skrifað af: Sigrún Helga Lund   

Í dag birtist leiðaráætlun Strætó fyrir næstkomandi vetur á vefnum bus.is.

Leiðakerfið virðist við fyrstu sýn álíka því sem var í vor, en þó eru nokkrar breytingar, sem eru útlistaðar á síðunni.

Ný áætlun mun taka gildi mánudaginn 23. ágúst.

Nemakort munu kosta 8.000 kr. fyrir einungis haustönn eða 15.000 báðar annir. Stefnt er að því að taka við umsóknum 20. eða 21. ágúst. Sjá nánar hér.

Síðast uppfært: Föstudagur, 21. ágúst 2009 10:59
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 5 af 12
Mostly Cloudy Light Rain Light Rain Showers Showers
13°C 14°C 14°C 12°C 12°C
Mið Fim Fös Lau Sun
<<  September 2010  >>
 M  T  W  T  F  S  S 
    1  2  3  4  5
  6  7  8  9101112
13141516171819
20212223242526
27282930   

Fólk á ferðinni

Gísli Marteinn Baldursson

Dóra Hlín Ingólfsdóttir

Staða:
Borgarfulltrúi

Póstnúmer:
107

Fjölskylduhagir:
Giftur, eigum tvær stelpur

Átt þú bíl:
Já, fjölskyldan á 1 bíl

Uppáhalds staður/borg:
Hver einasta borg á lítið hverfi, jafnvel bara götu, þar sem íbúðir, verslanir og þjónusta blandast saman á einhvern einstakan hátt. Íbúar og gestir mætast þar á opinberum stöðum, veitingastöðum verslunum eða gangstéttum og úr verður borgarumhverfi eins og það gerist best. Það eru mínir uppáhaldsstaðir.

Hvernig ferð þú ferða þinna:
Mest á hjóli. Nota bílinn aðallega þegar fjölskyldan fer eitthvað saman.

Hvað finnst þér um samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu:
Þau eru að breytast til batnaðar. Hjólastígar eru að lengjast, farþegum í strætó að fjölga og byggðin fer vonandi að þéttast.

Samtök um bíllausan lífsstíl, Powered by Joomla!; Joomla templates by SG web hosting