Gott framtak hjá Reykjavíkurborg. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigrún Helga Lund   

Á fundi borgarstjórnar í dag var ákveðið að unnin skyldi græn samgöngustefna fyrir borgina, með heitið "Grænar ferðir". í fréttatilkynningu frá borginni kemur fram að "...markmið samgöngustefnunnar yrði að innleiða vistvænar samgöngur í starfsemi borgarinnar og stuðla að betra og umhverfisvænna samgöngumynstri til framtíðar. Samgöngustefnan er hluti af Grænum skrefum borgarinnar og mun ná til allra sviða og stofnana Reykjavíkurborgar...".

Enn er ekki búið að skilgreina nákvæma útfærslu stefnunnar en Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður umhverfis- og samgönguráðs fullyrðir: "borgin skuldbindur sig til að bjóða starfsmönnum sínum að nýta aðra kosti en einkabílinn vegna starfa sinna". Þannig verði komið til móts við þá starfsmenn sem velji sér fjölbreyttari ferðamáta til að koma sér til og frá vinnu.

Samtök um Bíllausan lífsstíl fagna þessu framtaki borgarinnar og óska þess að Borgin sjá sér hag í að gera samgöngustefnu sína sem myndarlegasta. FÍB hefur reiknað saman nokkur dæmi um reksturskostnað bifreiða árið 2008, ódýrasta dæmið hljóðar upp á 770.075 kr. Ljóst er að á komandi misserum mun mörgum fjölskyldum muna mikið um slíkar upphæðir. Vonandi stuðla Grænar ferðir að því að sem flestir borgarstarfsmenn sjái sér leik á borði og taki upp fjölbreyttari samgöngumáta, heilsu sinni til heilla. Hvort heldur sem er líkamlegrar, andlegrar eða fjárhagslegrar.

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á síðu Reykjavíkurborgar.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 18. nóvember 2008 22:45
 
Bíllaus dagur 22. september Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásbjörn Ólafsson   

Hér kemur smá fróðleikur um hann.

http://en.wikipedia.org/wiki/Car_Free_Days

http://www.22september.org/

Bíllausi dagurinn er að jafnaði haldinn í kringum 22. september, oftast í tengslum við samgönguviku. Það er skemmtilegt að vita til þess að Reykjavíkurborg var með þeim fyrstu til að taka þennan dag upp.  Nú er er bara að safna saman hugmyndum um hvað er hægt að gera til að tryggja að sem flestir taki þátt.

Sjá nánar á facebook -
http://www.facebook.com/topic.php?topic=8768&uid=15607361559

 

 
2600 færri bílar á bíllausa deginum! Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Fréttasnápur   
Ný frétt frá Umhverfis- og samgöngusviði: 

http://www.rvk.is/DesktopDefault.aspx/tabid-39/351_read-12318/ 

Á lokadegi Evrópskrar samgönguviku eru íbúar í 2000 borgum hvattir til að hvíla bílinn og nýta aðra samgöngumáta eins og strætó, reiðhjól og göngur. „Við höfum ekki tekið þátt í bíllausa deginum í nokkur ár en ákváðum að hefja þátttöku aftur í dag," segir Pálmi Freyr Randversson verkefnastjóri Samgönguviku fyrir Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar. „Bíllausi dagurinn fer hægt af stað en við vonumst til að þátttakan verði vaxandi á næstu árum," segir hann. 2.600 færri bifreiðar óku Ártúnsbrekku og Sæbraut milli 7 og 9 í morgun miðað við mánudaginn 15. september og er það marktækur munur. 

Pálmi segist vera ánægður með Samgönguviku 2008, bæði hafa samgöngumál verið ofarlega í umræðunni og einnig hafi nýtt samgöngumannvirki verið opnað: forgangsakrein fyrir almenningssamgöngur. 

Laugardaginn 20. september mættust hjólalestir í Ráðhúsi Reykjavíkur á hjóladegi fjölskyldunnar. Fjölskyldur komu hjólandi frá Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og ýmsum áfangstöðum í Reykjavík. Einnig var Tjarnarspretturinn haldinn en það er hjólreiðakeppni Hjólreiðafélags Reykjavíkur. Tjarnarsprettsmeistari kvenna var Bryndís Þorsteinsdóttir en Hafsteinn Ægir Geirsson sigraði í karlaflokki. 
 
Bíllaus lífsstíll í Krossgötum Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Erling Jóhann Brynjólfsson   
Gaman er að segja frá því að m. a. verður rætt við formann samtakanna, Sigrúnu Helgu Lund, í útvarpsþættinum Krossgötum á Rás 1 kl. 13, laugardaginn 1. nóvember. Sjá nánar á heimasíðu þáttarins.
 
Myndir frá stofnfundi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigrún Helga Lund   

Myndir frá stofnfundinum á miðvikudaginn voru að smella inn á síðuna. 

Sjá  hér

Síðast uppfært: Sunnudagur, 21. september 2008 17:44
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 8 af 12
Mostly Cloudy Light Rain Light Rain Showers Showers
13°C 14°C 14°C 12°C 12°C
Mið Fim Fös Lau Sun
<<  September 2010  >>
 M  T  W  T  F  S  S 
    1  2  3  4  5
  6  7  8  9101112
13141516171819
20212223242526
27282930   

Fólk á ferðinni

Erling J. Brynjólfsson

Erling J. Brynjólfsson

Staða:
Doktorsnemi í kennilegri eðlisfræði

Póstnúmer:
107

Fjölskylduhagir:
Giftur og á tvö leikskólabörn 

Átt þú bíl:
Neibbs

Uppáhalds staður/borg:
Stokkhólmur

Hvernig ferð þú ferða þinna:
Gangandi

Hvað finnst þér um samgöngumál á stór-Reykjavíkursvæðinu:
Mér finnst ósanngjörn sú forgjöf sem einkabíllinn fær með ókeypis endalausum bílastæðum.

Samtök um bíllausan lífsstíl, Powered by Joomla!; Joomla templates by SG web hosting