|
Skrifað af: Benedikt Steinar Magnússon
|
|
Vil benda félagsmönnum og öðrum á eftirfarandi fyrirlestur um hjólreiðar sem verður í Háskóla Íslands, þriðjudaginn 27. apríl.
Borgarskipulag og hjólreiðar í Reykjavík – samanburður við Strasbourg
Tom Spach, meistaranemi við Université de Strasbourg, heldur fyrirlestur í stofu 132 í Öskju, Háskóla Íslands, þriðjudaginn 27. apríl kl. 15. Tom hefur dvalið við Háskóla Íslands sem skiptinemi undanfarna mánuði og greinir hér frá verkefni um skipulag og hjólreiðar í Reykjavík, sem hann hefur unnið að innan námsbrautar í landfræði.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 23. júní 2010 14:25 |
|
|
Skrifað af: Benedikt Steinar Magnússon
|
Fyrirlestraröð um skipulagsmál í Norræna húsinu
Arkitektafélag Íslands í samstarfi við Félag íslenskra landslagsarkitekta, Umhverfisráðuneytið og Norræna húsið, heldur fyrirlestraröðina "Lýðheilsa og skipulag".
Á HönnunarMarsi 2009 var haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur þriggja daga málþing sem bar sama heiti. Vegna fjölda áskorana var ákveðið að endurtaka leikinn.
Að þessu sinni verður fyrirlestraröðin haldin í Norræna húsinu miðvikudagana 14., 21. og 28.apríl kl. 17-19.
Flytjendur næstkomandi miðvikudag 21.apríl kl.17 eru : Gísli Marteinn Baldursson formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur, Hermann Georg Gunnlaugsson landslagsarkitekt, Lilja Sigrún Jónsdóttir læknir & Hlynur Torfason landfræðingur og Ásbjörn Ólafsson verkefnastjóri hjá Vegagerðinni.
Sjá heimasíðu Arkitektafélags Íslands : www.ai.is |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 23. júní 2010 14:49 |
|
Skrifað af: Benedikt Steinar Magnússon
|
|
Samtök um bíllausan lífsstíl ætla að halda opinn fund um hjólreiðamál þriðjudaginn 30. mars. Fundurinn verður í sal E, 3. hæð í húsi 4, hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, Engjavegi 6 og stendur frá 20:00 til 22:00.
Fundurinn skiptist í 3 stutt erindi, fyrirspurnir og almenna umræðu Erindi:
- Kynning á hjólreiðaáætlun Reykjavíkur
Pálmi Freyr Randversson, umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar
- ÍSÍ og hjólreiðar
Kristín Lilja Friðriksdóttir, verkefnastjóri almenningsíþróttasviðs Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
- Hjólreiðar í máli og myndum
Magnús Bergsson frá Landssamtökum hjólreiðamanna
-
Allir velkomnir ! Samtök um bíllausan lífstíl
|
|
|
Skrifað af: Benedikt Steinar Magnússon
|
|
Minnum á mánaðarleg kvikmyndakvöld Skipulagshóps Samtaka um bíllausan lífsstíl. Þriðja þriðjudag í máunuði á Kaffibarnum, horft er á kvikmyndir um skipulagsmál og málin rædd. Allir velkomnir, ókeypis aðgangur!
Hittumst næst í kvöld, þriðjudaginn 20. apríl klukkan 20:30, á Kaffibarnum Bergstaðarstræti 1. |
|
Skrifað af: Stjórnin
|
|
Reykjavíkurborg hefur samþykkt að efla hjólreiðar með metnaðarfullri hjólreiðaáætlun. Markmiðið er fimmföldun á hjólaleiðum í Reykjavík á næstu fimm árum, tíföldun á næstu tíu árum, hraðbraut fyrir hjól milli Laugardals og miðborgar og brú yfir Elliðaárósa – eingöngu fyrir gangandi og hjólandi.
Við hvetjum fólk til að kíkja á áætlunina á slóðinni http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/desktopdefault.aspx/tabid-259/1198_read-18853/ og sérstaklega á áhugaverð drög að bæklingi (.pdf) um hjólaborgina.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 2 af 12 |