|
Skrifað af: Birgir Þór Birgisson
|
Hver þekkir ekki til þeirrar löngunnar að vilja fá sér svo sem eins og eitt rauðvínsglas yfir rómantíska kvöldverðinum með konunni/manninum eða einn bjór með félögunum yfir fótboltaleiknum en geta það ekki vegna þess að maður er á bíl. Þá vakna oft upp hugsanir eins og: “ég skil hann bara eftir niðrí bæ og tek leigubíl heim” eða “það finnst nú ekkert á manni eftir einn bjór”. Oftar en ekki þá hverfa þessar hugsanir eins og dögg fyrir sólu þegar maður spáir í kostnaðinum og fyrirhöfninni. Leigubíllinn kostar yfirleitt meira en maður fær í námslán alla vikuna og vesenið að þurfa að hringja í einhvern daginn eftir til að láta skuttla sér eftir bílnum er yfirleitt ekki þess virði. Vandamálið skánar heldur ekki ef þetta er í miðri viku og venjulegur skóladagur eða vinnudagur daginn eftir. Ég tel að þetta sé ein af ástæðunum fyrir að drykkjusiðir Íslendinga eru allt annað en fágaðir. Það tekur því yfirleitt ekki að fá sér bara 2-3 bjóra því það þjónar ekki kostnaði að koma sér heim fyrirhafnalaust. Þá er nú betra að vera bara á bíl þetta kvöldið og detta bara vel í það næst. Þetta er eflaust algengur hugsunarháttur meðal yngri kynnslóðarinnar en möguleikarnir eru fleiri. Með því að nýta sér almennar samgöngur eru þessar áhyggjur úr sögunni og þeir sem hafa reynslu á erlendum stórborgum vita hvað það er þægilegt að geta farið í matarboð, út að borða eða kíkja bara á barinn og fengið sér eitt glas og tekið svo lestina eða strætóinn heim áhyggjulaus. Þetta er tvímælalaust eitt af því sem ég sakna við að búa erlendis og vona ég að samtök um bílalausan lífstíl muni stuðla að eflun almenna samgangna þannig að Íslendingar geti einhverntímann sagt “já takk ég kom með lestinni”. |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 08. október 2008 11:34 |
|
|
Skrifað af: Ólöf Kristjánsdóttir
|
|
Ég á bíl og ég nota hann. Ég er líka stofnfélagi í Samtökum um bíllausan lífsstíl. Þrátt fyrir að ég hafi gerst stofnfélagi, geri ég ekki ráð fyrir að leggja bílnum alfarið eða selja hann á næstunni. En ég hugsa mig þó tvisvar um áður en ég stekk upp í bíl til að keyra styttri vegalengdir. Samtök um bíllausan lífstíl eru nefnilega ekki bara fyrir þá sem ferðast einungis eftir öðrum leiðum en á einkabílnum. Þau eru líka fyrir þá sem vilja íhuga aðra kosti og geta nýtt sér þá í bland. Ég vil t.d. reyna að takmarka bílaeign fjölskyldunnar við eitt stykki í framtíðinni. Lengi vel, þegar ég var námsmaður á eigin vegum, ferðaðist ég mest með strætó. Þá tók við tímabil þar sem einkabíllinn varð að eins konar yfirhöfn og var nýttur í minnsta smotterí. Nú orðið hjóla ég eins og ég get og mér hefur dottið í hug að taka strætó. Ég íhuga aðra kosti og það er töluverð framför frá því sem áður var þegar bíllinn var fyrsti og eini valmöguleikinn. Þannig hafa Samtök um bíllausan lífstíl haft áhrif á mig og munu vonandi hafa áhrif á marga aðra. Ef ekki nema til þess að vekja fólk til umhugsunar. Sem dæmi er oft mun auðveldara að ferðast með strætó en maður heldur, ef maður drífur sig bara af stað. Og ferðin með strætó er mun afslappaðri en bakvið stýrið í umferðaflækju. Stundum tekur líka styttri tíma að komast milli staða á hjóli en á bíl, sérstaklega þegar ekki þarf að leita að bílastæði. Fyrir mitt leyti eru nokkur atriði sem fá mig til að skoða aðra valmöguleika en einkabílinn. Fyrst upp í hugann kemur auðvitað sparnaður enda einkabíll rándýr í rekstri, ekki síst á þessum síðustu og verstu tímum. Annað sem skiptir mig máli er mengunin sem fylgir einkabílnum. Ég veit að mitt framlag eitt og sér mun ekki skipta sköpum, en margt smátt gerir eitt stórt og þetta er mitt framlag. Að lokum hugsa ég út í alla þá hollu hreyfingu sem felst í því að ganga eða hjóla þegar tækifæri gefst til. Ef aðstæður eru réttar, er engin ástæða til að nota einkabílinn jafnmikið og raun ber vitni. Og ef aðstæðurnar hamla manni, er um að gera að reyna að breyta þeim svo hægt sé að nota bílinn minna. Hlýr klæðnaður getur skipt sköpum í vondu veðri og strætókort veitir afslátt af annars nokkuð dýrum ferðum með strætó. Hvernig væri að nota bílinn einungis í annað hvert skipti? T.d. keyra út í búð en ganga í vinnuna. Eða hjóla í vinnuna á sumrin en keyra á veturna. Hver og einn getur fundið sína leið og ef áhugi er fyrir hendi, er um að gera að nýta sér Samtök um bíllausan lífsstíl til að fá hugmyndir, útrás eða leiðbeiningar. |
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 10. október 2008 14:39 |
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 12 af 12 |